top of page

Pálmi og DÍA gefa út lag og myndband um að yfirkomast fíknina og öðlast nýjan styrk

Hann Pálmi Snær er 27 ára og leiddist ungur á myrka braut þar sem hann byrjaði að neyta fíkniefna ungur sem leiddist í harðari neyslu í kringum tvítugs aldurinn.

Neyslan gjörsamlega tók völdin og Pálmi byrjaði að týna sjálfum sér og með þeim afleiðingum að allt fór á niður leið í lífi hans og hans nánustu vinir og ættingjar byrjuðu að loka á hann. Frásögn Pálma.

''Á þessum tíma átti ég í miklu basli við fíkniefni og því dýpra sem ég var sokkinn því erfiðara var að koma mér úr þeirri dýflissu sem ég var sokkinn ofan í, ég fór að svíkja alla í kringum mig og var orðin einhver sem að ég þekkti ekki sjálfur.

Vanlíðan var orðin svo mikil að ég var farinn að missa lífsviljan og langaði helst ekki að vera hérna lengur.

Kvöldið eitt overdosaði ég og móðir mín þurfti að pumpa í mig lífi og á þeirri stundu þegar ég rólega áttaði mig á því sem gengið hefði á breyttist einhvað innra með mér og á þeirri stundu tók ég ákvörðun um að láta móðir mína aldrei upplifa þennan sársauka aftur að sjá son sinn í þessu ástandi.

Ég byrjaði að reyna snúa við blaðinu en það gekk hægt til að byrja með.

Fyrir 3 árum fór ég svo loksins í meðferð og hef verið án fíkniefna seinustu 2 árin og ætla mér aldrei aftur á þann dimma stað sem ég var fastur á.

Ég er svo þakklátur fjölskyldu minni og þeim vinum sem hafa umvafið mig aftur allri sinni ást og umhyggju og haft trú á mér í gegnum þessa erfiðleika.

Það sem að hefur hjálpað mér að komast í gegnum þetta eru skrifin og skrifa ég mikið af textum og samdi ég lag sem að táknar minn dans við bakkus og bataferlið.''

Pálmi samdi lag um þessa tíma og bata ferlið sitt með henni Dagbjörtu Rúriks eða DÍA eins og hún kemur fram og í dag kom lagið þeirra ásamt tónlistarmyndbandi.

Dagbjört og Pálmi hafa sungið saman síðan þau voru 17 ára en voru að gefa út sitt fyrsta lag saman í dag.

Lagið heitir Gef þér allt og er tileinkað því sem að vonin og trúin getur gert fyrir alla. Myndbandið er framleitt og leikstýrt af Álfrúnu Kolbrúnardóttir og lagið er producerað af Birgir Örn Magnússyni. Flame Productions


0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page