MONORA –Tónlist sem beið í 23 ár eftir að fæðast
- Ritstjórn

- 3 days ago
- 3 min read
Updated: 2 days ago
Stundum tekur tónlist langan tíma að finna sína leið út í heiminn.Ekki vegna þess að hún sé ekki tilbúin, heldur vegna þess að lífið sjálft þarf fyrst að gerast.
Íslenska hljómsveitin MONORA, skipuð þeim Einari Val Sigurjónssyni, Guðbjörgu Elísu Hafsteins (Guggu) og Guðmanni Sveinssyni, gaf nýverið út sína fyrstu EP-plötu, 99, þann 27. mars. Þó útgáfan sé ný á tónlistin rætur sínar að rekja yfir tvo áratugi aftur í tímann.

Lög sem fæddust fyrir 23 árum
Saga MONORA hófst fyrir um 23 árum þegar Einar og Gugga byrjuðu að starfa og semja saman tónlist. Þau höfðu bæði verið mikið að semja sitt í hvoru lagi áður, en þegar þau hittust og hófu að semja, gerðist eitthvað sérstakt.
„Í fyrsta skipti sem við settumst niður og sömdum saman small eitthvað,“ segja þau.„Alltaf þegar við hittumst kemur flæði og sköpunarkraftur sem passar bara fullkomlega saman.“
Úr þessum fyrstu samverustundum fæddust meðal annars lögin sem nú eru á EP plötunni 99.

Mikil og löng reynsla
Þrátt fyrir að MONORA sé nýtt nafn á tónlistarsenunni er hljómsveitin skipuð reynslumiklu tónlistarfólki með áratuga tengsl við tónlist. Söngkonan Guðbjörg Elísa Hafsteins, betur þekkt sem Gugga Lísa, hefur lengi verið virk í tónlistinni, m.a gefið út tónlist sem notið hefur mikilla vinsælda. Guðmann Sveinsson starfar einnig sem tónlistarkennari og hefur verið virkur í tónlistarsenunni, meðal annars með hljómsveitinni Ástarpungunum, en hann og Einar Valur Sigurjónsson hafa einnig trúbadorast saman ásamt því að spila saman í hljómsveitinni Cryptic Melody ásamt fleiru í gegnum tíðina. Þá hafa Gugga og Einar einnig starfað í hinum ýmsu tónlistar verkefnum eins og hefur komið fram, saman og sitt í hvoru lagi.

Fyrstu upptökurnar árið 2004
Fyrstu demó upptökurnar voru gerðar árið 2004, einfaldar, með einungis gítar og rödd. Gugga var þá kasólétt af eldri dóttur sinni, sem gerir söguna enn persónulegri í dag. Í dag eru dætur hennar meðal þeirra sem hafa beðið lengst eftir útgáfu laganna.
„Þær hafa í raun verið að suða í okkur af og til um að gefa þau út frá því þær heyrðu þau fyrst,“ segir Gugga og brosir.
Lögin vöktu strax athygli og gengu á milli fólks á CD, en útgáfan lét á sér standa.
Um 2015 fengu þau svo tækifæri til að taka upp nýtt demó með hljómsveit, þar sem Guðmann Sveinsson kom sterkur inn í verkefnið með sinn fallega tón. Aftur fengu þau góð viðbrögð en lífið tók sinn tíma.
„Okkur hefur alltaf þótt vænt um þessa sköpun, en það var ekki fyrr en nú sem við fengum rými til að klára þetta.''
Lögin hafa nú loksins litið dagsins ljós. Í upphafi þessa árs, kláruðu þau verkefnið upp í Stúdíó Paradís hjá þeim feðgum Jóhanni Ásmundssyni og Ásmundi Jóhannsyni. Spila þeir feðgar af sinni alkunnu snilld á Trommur og Bassa ásamt hljóðvinnslu inn á plötuna. Einar spilar á kassagítar og syngur bakraddir, Guðmann á rafgítar og svo syngur Gugga aðalrödd og einnig bakraddir.
Tónlist sem speglar lífið
Lögin á 99 eru persónuleg og tilfinningarík, en þau byggja líka á reynslu annarra í kringum þau. Hugmyndirnar koma úr lífinu sjálfu, sögum, samböndum og tilfinningum sem margir geta tengt við.
„Lögin eru í raun eins og litlar skáldsögur,“ segja þau.
„Þau byggja á blöndu af ýmsum reynslum, bæði okkar eigin og fólks í kringum okkur.“ ,,Þannig að hvert lag á sér margar sögur sem eru ofnar saman í eina sjálfstæða skáldsögu.

Þegar sköpunarkrafturinn fær að flæða, finnur tónlistin alltaf leið út í heiminn sama hversu langan tíma það tekur.
Á meðan á þessum árum stóð þróaðist lífið í kringum þau, fjölskyldur stækkuðu og nýjar reynslur bættust við. Í dag er það jafnvel ein af ástæðunum fyrir því að lögin hafa enn dýpri merkingu. Hvað er framundan?
Nú er fyrsta EP platan komin út, en þetta er aðeins byrjunin.
Framundan hjá MONORA er að kynna plötuna, halda áfram að skapa og gefa út fleiri lög sem hafa lifað með þeim í gegnum árin. Því ef eitthvað er ljóst, þá er það þetta:
Þegar rétt fólk hittist og sköpunarkrafturinn fær að flæða, þá finnur tónlistin alltaf leið út í heiminn, sama hversu langan tíma það tekur.





Comments