Áratuga draumur rætist og ný rokkplata mætt
- Ritstjórn
- Mar 21
- 3 min read
Updated: Mar 24
,,Unbreakable‘‘ er fyrsta breiðskífa tónlistarmannsins Grétars Lárusar Matthíassonar sem ber tónlistarnafnið Grétar Matt, þar sem hann dregur saman áratugalanga ástríðu sína fyrir tónlist og inniheldur hún samtals 12 lög sem eru bæði persónulegar og sterkar sögur. Platan er afrakstur mikillar vinnu, minninga og krafts. Sum laganna spruttu fram á rólegum sumardögum, önnur úr sársaukafullum minningum.
,,Þetta hefur verið draumur í mörg ár‘‘ segir Grétar sem hefur spilað á gítar frá barnsaldri. Hann var í tónlistarskóla á unglingsárum í Grindavík og færði sig til Reykjavíkur í tveggja ára tónlistarnám hjá FÍH.

Hann hefur alla tíð verið að semja gítarriff og melódíur en gaf sér aldrei tíma til að klára þau fyrr en núna. Það var ekki fyrr en í ágúst 2022 þegar eiginkona hans Karen Dögg gaf honum fjóra stúdíó tíma hjá Stúdíó Paradís í afmælisgjöf, sem verkefnið fór af stað fyrir alvöru. Tímarnir áttu að vera nóg til þess að taka upp eitt heilt lag mögulega en þegar hann vissi af þessum tíma kviknaði í sköpunarkraftinum og áður en hann vissi var hann mættur í stúdíóið með þrjú lög tilbúin og gaf út sinn fyrsta stökul í febrúar 2023. Það losnaði um eitthvað í sköpunarkraftinum og ný lög fóru að fæðast. ,,En bara að fá þetta spark í rassinn og vita að ég ætti tíma í hljóðveri opnaði einhverja flóðgátt‘‘ Segir Grétar. Persónulegar sögur að baki í lögunum Á plötunni má finna lög sem endurspegla lífshlaup Grétars bæði áföll og gleðistundir. Platan er fjölbreytt í tónlistarstíl en hefur rokk sem grunnstef.
Lagið‚ ‘‘barnið mitt‘‘ fjallar um barnsmissi sem hann fór í gegnum árið 2008 þegar hann missir aðra tvíburadóttir sína, Elsu Björt aðeins viku gamla ,,Þetta er sorg sem fylgir mér alla tíð‘‘ Segir hann. Texti lagsins er eftir Kristínu Matthíasdóttur systir Grétars sem samdi textann eftir heilunar stund með honum. ,,Þegar ég las textann, brotnaði ég algerlega saman,‘‘ segir hann. ,, Það var eins og textinn talaði beint úr mínu hjarta‘‘. Nefnir Grétar.
Titillagið ,,Unbreakable‘‘ er tileinkað annarri systur Grétars, Laufeyju sem greindist með blóðkrabbamein árið 2021. Grétar passaði sem stofnfrumugjafi fyrir hana og lagið varð til á hótelherbergi í Svíþjóð í því ferli og var þetta lag samið fyrir hana á meðan gjafaferlinu stóð þegar hún var í baráttu við krabbamein. ,,Hún hafði verið beygð en ekki brotin, því hún er ,,Unbreakable‘‘. Hún er laus við krabbameinið í dag ‘‘ útskýrir Grétar.
Lögin ,,Under a Heavy Stone‘‘ og ,,Life Sets In,, urðu til á sama tíma og var það á sólríkum degi á pallinum. Under a Heavy Stone er ákveðin úrvinnsla úr fortíðinni. Lagið Life Sets In er áminning um hvað lífið er dásamlegt og nefnir hann hvernig gróðurinn er að taka við sér og tjáning á hvernig lífið er að kvikna eftir vetra-dvalann.

Lagið Welcome to the show fæðist eftir heimsókn og upplifun á rokkhátíð í Belgíu. ,,Þetta var mögnuð upplifun. Ég kom heim yfir mig peppaður og samdi lagið ,,Welcome to the show‘‘ sem fangar stemminguna á rokkhátíð. Allir ættu að upplifa slíka orku,‘‘ Segir hann. Lokaviðureign á Karolina Fund
Þegar ljóst var að platan væri að taka á sig mynd þurfti Grétar að leita leiða til að fjármagna verkefnið. Hann leitaði í styrki en fékk enga úthlutun. Í stað þess að láta deigan síga ákvað hann að setja af stað söfnun á Karolina Fund, sem fékk mikinn stuðning. ,, Það var magnað að sjá hversu margir stóðu með mér. Þetta var áminning um að draumar rætast ef maður hefur trú á sér.‘‘ Segir Grétar. Hann er óendanlega þakklátur fyrir fólkið sem lögðu verkefninu lið.
Plötuna er hægt að hlusta á hér
Comments