top of page

Byrjaði að drekka 15 ára og drakk í 17 ár

Tónlistarmaðurinn Eymar hefur lifað heimana tvo og opnar sig nú fyrst um sína sögu fyrir almenning.


Eymar fæðist á Sauðárkrók og segir barnæskuna hafa verið hamingjusama, skólinn hafi gengið vel og var virkur í fótbolta og körfubolta en tók snarpa U-beygju þegar Eymar fór að fikta við áfengi á unglingsárum.


,,Ég byrjaði að drekka 15 ára gamall og drakk næstu 17 ár eftir það, ég var 32 þegar ég náði að hætta. Er búinn að vera edrú í fjögur ár og það er magnað hversu hratt lífið breyttist eftir það.’’ - Eymar

Eymar segir drykkjuna hafa byrjað á helgardrykkju hverja helgi en um 18 ára aldur hafi það orðið að dagdrykkju og þá var ekki aftur snúið næstu 17 árin.

Á hans 18 ári flytur Eymar til Reykjavíkur og þar heldur drykkjan áfram ásamt því að leiðast út í örvandi efni sem bauð upp á enn meira drykkjuþol.

Eymar segir þessi fyrstu ár í Reykjavík hafa verið stjórnlaus og hann hafi verið mjög týndur en hefur samt sem áður alltaf verið með hjartað á réttum stað og hefur tónlistin fylgt honum hvert sem hans för hefur verið heitið.

,,Ég var ábyggilega með virkustu tónlistarmönnum Íslands á þessum tíma án þess að fá nokkurn tímann borgað fyrir neitt, og tók ég gítarinn minn með mér í öll partý þar sem ég spilaði og hélt uppi stuðinu fyrir vinum og vandamönnum.’’ - Eymar

25 ára eignast Eymar hundinn sinn Mola á þessum sama tíma og leggur flöskuna á hilluna í örskamma stund en fellur svo í helgardrykkjuna skömmu seinna en nær að halda drykkjunni þar.

Eymar kynnist svo konunni sinni Hörpu og saman eignast þau sitt fyrsta barn.

Eymar er búin að telja sér trú um að nú sé hann ekki að glíma við alkóhólisma lengur en konan hans bendir honum á að hann sé að misnota áfengi með því að drekka allar helgar og fram að hádegi næsta dags.


,,það sem enginn sá var að hverja helgi þurfti ég að drekka einn þangað til fram að hádegi daginn eftir, talandi við sjálfan mig, aleinn og týndur..’’ Eymar Eymar segir því næstu árin hafa verið þau erfiðustu sem að hann átti eftir að upplifa þar sem strákurinn hans og konan eru hans heimur og vildi allt fyrir þau gera en var í stríði við bakkus á sama tíma sem vildi ekki sleppa takinu á honum.

Eymar hefur samið tónlist í gegnum ferlið og gaf út plötuna 2018 nýlega og fjallar hún um baráttuna við brennivínið, hann hefur bæði tapað og sigrað, dottið niður og staðið aftur upp.


,,Fimmta lag plötunnar heitir 2018 og fjallar um þann tíma sem ég upplifði versta kvöld ævi minnar. Ég gat ekki drukkið lengur og á sama tíma gat ég ekki hætt að drekka. Þetta kvöld endar niður á gjörgæslu þar sem ég lá í alvarlegu ástandi. Það sem ég man er þegar ég vaknaði aftur var hjúkrunarkona sem horfði á mig eins og hana langaði að bjarga mér frá helvítinu sem ég var fastur í. Ég mun aldrei gleyma því.’’ - Eymar

Eymar segir hjúkrunarkonuna á vakt hafa átt mikinn þátt í bataferlinu hans og hjálpað honum að sjá hlutina í réttu ljósi og er Eymar henni ævinlega þakklátur.


4 dögum seinna þegar Eymar er útskrifaður af spítala dettur hann samstundis í það aftur en eitthvað var breytt og hann ákveður á því augnabliki að leita sér hjálpar,.

Hann hefur ekki drukkið síðan og í dag eru liðin um 4 ár. Það var fyrst þá eftir að hann kvaddi drykkjuna sem að allir hans draumar urðu að veruleika, það bætist lítil stúlka í hópinn í fjölskyldunni hans, og hann gat byrjað að hlúa að listamanna draumnum sínum um að taka upp og gefa út tónlist.

Eymar segir ferðalagið þau 17 árin hafa liðið á ofsahraða, eins og að blikka augunum og 17 ár hafa liðið og hann hafi aldrei gert sér grein fyrir því að til þess að geta tekist á við vandamálið að alvöru þyrfti hann að fá utanaðkomandi aðstoð.


Eymar hvetur aðra í sömu sporum til þess að teygja út höndina og vera ófeimin við að biðja um aðstoð því aðstæður eru aldrei eins slæmar eins og flestir telja sér trú um því það eru svo margir sem eru tilbúnir að stíga inn og hjálpa.

,,Á þessum árum sem ég hef fengið að vera edrú hef ég horft á eftir ótal vinum mínum falla frá, fyrir eigin hendi eða út af beinum afleiðingum alkahólismans og ég hugsa bara alltaf hvað ég er ótrúlega þakklátur fyrir að fá að vera hérna,.’’ Eymar

Lokalagið á plötunni hans heitir einmitt: "Ef ég væri ekki hérna"


Platan hans 2018 er bein frásögn frá lífinu hans í borginni og leiðir okkur í gegnum týndu árin alveg fram í sigurinn við bakkus og alla þá sorg, hamingju og þrautir sem að Eymar fór í gegnum á þessum árum þar til hann fann sjálfan sig á ný og segir Eymar það einungis vera byrjunina á þeim sögum sem hann hefur að bera. Þú getur fylgt Eymari á samfélagsmiðlum hans hér.


0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page