top of page

Hakkarafaraldur, fjárkúgun og þjófnaður.

Það má svo sannarlega segja að það sé mikið um svindl hér á landi og kannast margir við það að fá ýmiskonar skilaboð send reglulega, hvort sem það kemur á netfangið eða beint í símann. Skilaboðin líta út fyrir að vera koma frá fyrirtækjum eins og póstinum, Dhl og fleirum þar sem þeir óska eftir að fólk setji inn kortaupplýsingarnar sínar í gegnum greiðslu hlekk. Seinasta árið misstu fórnarlömb net svindlara um 254.445.158 kr. Samtals sem tilkynnt var til lögreglunar. Frá því að tölfræði hefur verið tekin saman frá loka árs 2017 þá hefur mælanlegt heildartjón af netglæpum á Íslandi verið 1.280.627.378 kr. Öfgakenndasta tilvik þessa árs var maður sem tapaði 79.696.224 kr. á 53 dögum. Eftir að

glæpamennirnir höfðu tæmt reikninga hans þá leiðbeindu þeir honum um að taka lán í öllum þremur stærstu viðskiptabönkum Íslendinga.


Svindlararnir geta birst í ýmsum formum sem dæmi má nefna falskar fyrirtækjasíður, falskir ástvinir, fjárfesta síður, vörusvik, leigusvik, fjárkúgun ofr.


Einnig er gífurlegur faraldur hakkara sem að ræna samfélagsmiðla síðum af einstaklingum með þeim tilgangi að fjárkúga einstaklinginn í það að greiða sér peninga til þess að fá síðuna til baka.



Söngvarinn og skemmtikrafturinn Jógvan Hansen lenti illa í klóm hakkaranna nýlega þar sem facebook síðu hans sem hann hafði verið með síðan árið 2008 ásamt Instagram síðu hans með yfir 10.000 fylgjendum var rænt. Hakkararnir þóttust vera frá Instagram og voru að bjóða honum bláa merkið sem að margir fá á Instagram eftir ákveðið háar fylgjendatölur. Jógvan hafði á þeim sama tíma verið nýbúin að sækja um bláa merkið og var því hæst ánægður með skilaboðin.


‘’Ég samþykkti að sjálfsögðu að fá merkið með því að smella á hlekkinn sem að fylgdi póstinum en þá voru þeir búnir að hakka sig inn hjá mér’’ - Jógvan Það var víst þannig að um leið og hann smellti á hnappinn þá var hann búin að hleypa þeim inn í aðganginn sinn og þeir hófust þá fljótt handa við að skipta út netfanginu hans og breyta um lykilorð svo hann kæmist 100% ekki inn á aðganginn sinn….

‘’Á meðan þessu stóð hringdu þeir stanslaust í mig og áreittu, heimtuðu svo að ef ég myndi ekki borga þeim myndu þeir útrýma aðgangnum mínum. Ég tek ekki þátt í svona fjárkúgun og að sjálfsögðu kemur ekki til greina að greiði þeim eina einustu krónu..’’ - Jógvan

Jógvan ákvað að láta þetta ekki á sig fá og stofnaði nýja aðganga.. Hægt er að sýna honum stuðning og fylgja nýrri Instagram síðu hans hér.


‘’Þetta kom mér mikið á óvart og hefði mér alls ekki dottið í hug að það væri einhvað loðið við þetta fyrr en ég fékk skilaboðin, ‘’Hi dude, I hacked your instagram, facebook and snapchat.. I will give it back for a fee. If you block or don’t reply I will delete it’’.. Þetta er að sjálfsögðu skellur en ég ákvað að vera rólegur í gegnum þetta og halda áfram með lífið..’’ - Jógvan


Þetta er orðið gríðarlega stórt tap fyrir þjóðina og þá sem að lenda í svona hrikalegri reynslu og mælir lögreglan sterklega gegn því að greiða þeim peninga til þess að fá aðganginn aftur. Því í raun kveikir það enn frekari eld undir þeim.


Mikilvægt er að hafa varan á þegar kemur að öllum skilaboðum og samskiptum í gegnum netheimana sama í hvaða formi sem þau birtast. Hakkararnir verða klókari með hverjum deginum og það mikilvægasta af öllu er að aldrei ýta á hlekki eða setja inn greiðsluupplýsingar án þess að vera 100% búin að ganga úr skugga að tengiliðurinn sem er að senda á ykkur sé frá sjálfu fyrirtækinu. Ef það er vafi á því er um að gera að hafa beint samband við fyrirtækið sem á við og spyrjast fyrir.

0 comments
bottom of page